John Stones verður væntanlega kominn í liðið hjá Manchester City í komandi leikjum en Pep Guardiola greindi frá því að meiðslin hans væru ekki eins alvarleg og búist var við í fyrstu.
Kyle Walker og Ederson verða hins vegar ekki klárir á næstunni.
„Stones kannski, hinir tveir, ekki séns. Stones verður að vera fullkomlega klár. Meiðslin eru ekki eins alvarleg og búist var við. Við sjáum til hann verður annað hvort klár í leikinn gegn Villa eða næsta," sagði Guardiola.
Guardiola bætti því við að Nathan Ake verði ekki með gegn Aston Villa. City fær Villa í heimsókn í kvöld og getur jafnað Liverpool að stigum á toppi deildarinnar með sigri.
Athugasemdir