Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   sun 03. desember 2017 12:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dyche hrósar Jóa Berg og Robbie Brady: Mjög góðir leikmenn
Mynd: Getty Images
Sean Dyche, stjóri Burnley, hefur verið virkilega ánægður með Jóhann Berg Guðmundsson það sem af er þessu tímabili.

Jóhann Berg hefur verið að spila mjög vel í undanförnum leikjum og verið duglegur við að leggja upp fyrir liðsfélaga sína.

Dyche hefur tekið eftir því, en Robbie Brady kollegi Jóhanns hefur líka verið að spila virkilega vel.

„Robbie hefur aðlagast mjög vel og Jóhann heldur áfram að venjast því að spila á þessu stigi. Þeir eru báðir mjög góðir leikmenn," sagði Dyche við Lancashire Telegraph.

„Þeir voru báðir frábærir gegn Arsenal (í síðustu viku), þeir höfðu mikil áhrif á leikinn og voru duglegir í sinni vinnu fyrir liðið."

Burnley hefur komið á óvart og er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 25 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 26 5 5 88 28 +60 83
2 Man City 35 25 7 3 87 33 +54 82
3 Liverpool 36 23 9 4 81 38 +43 78
4 Aston Villa 36 20 7 9 73 53 +20 67
5 Tottenham 35 18 6 11 69 58 +11 60
6 Newcastle 35 17 5 13 78 56 +22 56
7 Chelsea 35 15 9 11 70 59 +11 54
8 Man Utd 35 16 6 13 52 55 -3 54
9 West Ham 36 13 10 13 56 70 -14 49
10 Bournemouth 36 13 9 14 52 63 -11 48
11 Brighton 35 12 11 12 53 57 -4 47
12 Wolves 36 13 7 16 49 60 -11 46
13 Fulham 36 12 8 16 51 55 -4 44
14 Crystal Palace 36 11 10 15 49 57 -8 43
15 Everton 36 12 9 15 38 49 -11 37
16 Brentford 36 9 9 18 52 60 -8 36
17 Nott. Forest 36 8 9 19 45 63 -18 29
18 Luton 36 6 8 22 49 78 -29 26
19 Burnley 36 5 9 22 39 74 -35 24
20 Sheffield Utd 36 3 7 26 35 100 -65 16
Athugasemdir
banner
banner
banner