Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fim 04. apríl 2024 13:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verður hjá Brighton á næsta tímabili
Undav fagnar hér marki með Stuttgart.
Undav fagnar hér marki með Stuttgart.
Mynd: EPA
„Á næsta tímabili munu Deniz Undav koma aftur til Brighton," segir Roberto De Zerbi, stjóri Brighton.

Undav, sem er 27 ára gamall, er á láni hjá Stuttgart í Þýskalandi frá Brighton en hann hefur verið að gera stórkostlega hluti með Stuttgart.

Á þessu tímabili er hann með 15 mörk og sjö stoðsendingar í þýsku deildinni, sem varð til þess að hann var kallaður inn í þýska landsliðið fyrir verkefnið í mars.

Stuttgart hefur auðvitað mikinn áhuga á að halda honum en Brighton ætlar sér ekki að missa hann.

Undav var keyptur til Brighton frá Union SG í Belgíu í janúar 2022. Hann hefur spilað 30 leiki fyrir enska félagið og skorað í þeim átta mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner