Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   sun 10. mars 2024 15:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Ings tryggði West Ham jafntefli - Brighton lagði Nottingham Forest
Danny Ings
Danny Ings
Mynd: Getty Images

West Ham og Burnley skildu jöfn í ensku úrvalsdeildinni í dag. Brighton lagði Nottingham Forest


David Datro Fofana kom Burnley yfir snemma leiks þegar hann átti skot fyrir utan vítateignn og boltinn söng í netinu. Undir lok fyrri hálfleiks tókst Burnley að tvöfalda forskot sitt þegar Konstantinos Mavorpanos varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

West Ham kom mun sterkari til leiks í seinni hálfleik en Lucas Paqueta vann boltann hátt upp á vellinum og kom sér inn á teiginn strax í upphafi seinni hálfleiksins og skoraði af miklu öryggi.

Danny Ings kom inn á sem varamaður undir lok leiksins og átti eftir að láta til sín taka. Hann kom boltanum í netið á 86. mínútu eftir sendingu frá Antonio en sá síðarnefndi var dæmdur rangstæður og markið dæmt af.

Ings gafst ekki upp og skoraði stuttu síðar og í þetta sinn var það löglegt. Leikmenn West Ham reyndu hvað þeir gátu að vinna leikinn en jafntefli var niðurstaðan.

Brighton lagði Nottingham Forest þar sem Omobamidele varð fyrri því óláni að skora sjálfsmark.

West Ham 2 - 2 Burnley
0-1 David Datro Fofana ('11 )
0-2 Konstantinos Mavropanos ('45 , sjálfsmark)
1-2 Lucas Paqueta ('46 )
2-2 Danny Ings ('90 )

Brighton 1 - 0 Nott. Forest
0-1 Andrew Omobamidele ('29 , sjálfsmark)


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner