Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   sun 10. mars 2024 16:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Beint af æfingasvæði Man City
Mynd: Getty Images

Það er stórleikur á Anfield þessa stundina þar sem Liverpool og Manchester City eigast við.


Það er kominn hálfleikur en gestirnir eru með eins marks forystu.

Það var enginn annar en John Stones sem skoraði markið en þetta var hans fyrsta mark á tímabilinu og fyrsta mark hans í tæpt ár.

Man City fékk hornspyrnu og Kevin de Bruyne laumaði boltanum á nær þar sem enginn Liverpool maður var klár og Stones var mættur og setti boltann í netið.

Eins og staðan er er City komið á toppinn og Liverpool komið niður í þriðja sæti deildarinnar.

Sjáðu markið hér


Athugasemdir
banner