Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 13. mars 2024 10:09
Elvar Geir Magnússon
Ramsdale faðmaði Raya innilega eftir að Arsenal komst áfram
Ramsdale faðmar Raya.
Ramsdale faðmar Raya.
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsdale sýndi að það ríkir virðing og kærleikur milli hans og David Raya þrátt fyrir samkeppnina þegar Arsenal fagnaði sigri yfir Porto í Meistaradeildinni í gær.

Raya, sem hirti byrjunarliðssætið af Ramsdale, var hetja Arsenal þegar hann varði tvær vítaspyrnur í vítakeppni gegn Porto í 16-liða úrslitum.

Ramsdale var einn fyrsti maðurinn á vettvang til að fagna Raya eftir vítakeppnina og gaf honum innilegt faðmlag.

Þetta fór ekki framhjá stuðningsmönnum Arsenal sem voru fljótir að hrósa Ramsdale á samfélagsmiðlum og tala um mikla samheldni innan hópsins. Arsenal dreymir um að vinna bæði enska meistaratilinn og Meistaradeildina.

Ramsdale gerði hrikaleg mistök gegn Brentford um síðustu helgi en Arsenal slapp með skrekkinn og landaði sigri. Raya var síðan mættur aftur í rammann í gær og var hetja liðsins.


Athugasemdir
banner
banner