Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   mið 13. desember 2017 20:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bauluðu hátt á Donnarumma
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn AC Milan bauluðu hátt þegar nafn Gianluigi Donnarumma var lesið upp á San Siro í kvöld.

Milan leikur nú gegn Hellas Verona í ítalska bikarnum og er staðan 2-0 þegar þessi frétt er skrifuð.

Donnarumma er í markinu, en hann hefur fengið að heyra það í kvöld. Stuðningsmenn Milan hafa baulað á hann auk þess sem þeir hafa sungið niðrandi söngva um hann.

Ástæðan fyrir þessu er sú að ítalskir miðlar hafa greint frá því að markvörðurinn ungi sé óánægður í Mílanó og vilji komast burt.

Donnarumma var sagður ósáttur í sumar áður en hann skrifaði undir nýjan samning. Nú er hann hins vegar aftur í fréttunum og það eru stuðningsmenn félagsins allt annað en sáttir með.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner