Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fim 17. janúar 2019 09:30
Magnús Már Einarsson
Barnalán hjá Manchester United - Sex eignast börn
Paul Pogba varð faðir á dögunum.
Paul Pogba varð faðir á dögunum.
Mynd: Getty Images
Mikið barnalán er í herbúðum Manchester United þessa dagana. Paul Pogba er sagður hafa orðið faðir í fyrta skipti á dögunum og fimm aðrir leikmenn eiga von á barni á næstunni.

Enskir fjölmiðlar segja að Maria Salaues, kærasta Pogba, hafi fætt son í heiminn í byrjun árs.

Nemanja Matic á von á sínu þriðja barni á næstu dögum og í gær tilkynnti Fred að hann eigi von á strák ásamt kærustu sinni.

Victor Lindelöf og kærasta hans Maja Nilsson eiga einnig von á barni í heiminn á næstu vikum.

Þá hafa Chris Smalling og Matteo Darmian greint frá því að þeiri eigi von á börnum á þessu ári með kærustum sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner