Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 19. apríl 2022 23:45
Brynjar Ingi Erluson
Spilaði aðeins nokkrar mínútur í niðurlægingunni en fær mikið lof
Hannibal Mejbri í baráttunni við Andy Robertson
Hannibal Mejbri í baráttunni við Andy Robertson
Mynd: Getty Images
Gary Neville, sparkspekingur á Sky, hrósaði einum leikmanni Manchester United fyrir í 4-0 tapinu gegn Liverpool í kvöld en sá spilaði aðeins nokkrar mínútur í leiknum.

Tímabilið hjá Manchester United hefur verið dapurt og var það vitað fyrirfram að leikurinn í kvöld yrði erfiður.

Liverpool stýrði leiknum frá A til Ö og fagnaði 4-0 sigri. Liðið vann fyrri leikinn á tímabilinu 5-0 og var sama upp á teninginn í kvöld.

Fyrrum stórstjörnur Manchester United hafa lýst yfir miklum vonbrigðum með leikmenn United en það var þó einn sem stóð upp úr fyrir baráttuviljann og ákefðina.

Hinn 19 ára gamli Hannibal Mejbri kom inná þegar sex mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og sýndi meiri ákefð en liðsfélagar hans í kvöld.

„Það þurfti ungan strák til að koma inná og sýna restinni af leikmönnum hvernig á að hlaupa á eftir bolta og berjast. Ég er bara mjög stoltur af honum. Hann er sennilega ekki hrifinn af þeirri hugmynd að leikmenn Liverpool voru að spila í kringum hann. Ég vildi óska þess hinir hugsuðu eins," sagði Neville eftir tæklingu Mejbri á Naby Keita.


Athugasemdir
banner
banner
banner