Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fim 21. mars 2024 21:25
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Ísraela rekinn af velli fyrir ljóta tæklingu á Arnóri
Icelandair
Mynd: Getty Images
Ísraelska landsliðið er manni færri eftir að Roy Revivo fékk að líta rauða spjaldið fyrir hættulega tæklingu á Arnóri Sigurðssyni á 73. mínútu leiksins.

Arnór keyrði upp vænginn áður en Revivo fleygði sér með báðar fætur inn í Arnór.

Anthony Taylor, dómari leiksins, hugsaði sig um í nokkrar sekúndur áður en lyfti rauða spjaldinu.

VAR staðfesti dóminn og Ísraelar því manni færri en Arnór gat ekki haldið leik áfram og kom Mikael Neville Anderson inn í hans stað.

Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner