Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er sjóðandi heitur þessa dagana en hann kom Genoa yfir gegn Frosinone í ítölsku deildinni í dag.
Albert hefur skorað nú skorað ellefu mörk í ítölsku deildinni en hann kemur sjóðandi heitur úr landsleikjunum þar sem hann skoraði fjögur mörk samtals gegn Úkraínu og Ísrael.
Hann kom Genoa yfir í dag með marki úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur en staðan er 1-1 í hálfleik.
Eins og staðan er núna er Genoa í 12. sæti með 35 stig.
Athugasemdir