Fer frá Bolton í sumar
Grétar Rafn Steinsson og félagar í Bolton Wanderers féllu úr ensku úrvalsdeildinni eftir 2-2 jafntefli gegn Stoke í lokaumferðinni um helgina. Bolton hefði með sigri í leiknum náð að halda sér uppi en bæði mörk Stoke í leiknum voru vafasöm. Fyrst skallaði Jonathan Walters boltann úr höndunum á Adam Bogdan markverði Bolton og síðan skoraði Walters úr nokkuð umdeildri vítaspyrnu sem Peter Crouch fiskaði.
,, Þetta var mjög sárt. Það er ótrúlegt að dómarinn hafi dæmt þessi mörk. Oft hefur maður sagt að lið eigi það skilið þegar þau fara niður en mér finnst utanaðkomandi aðstæður hafa haft áhrif af hverju liðið fór niður," sagði Grétar Rafn við Fótbolta.net í dag.
,,Þetta er virkilega leitt fyrir klúbbinn sem hefur náð að standa sig vel í úrvaldseildinni undanfarinar ár og festa sig í sessi í deildinni þrátt fyrir að hafa ekki mikið fjármagn. Það er leiðinlegt að sjá klúbbinn hægt og sígandi fara eins lágt og hægt er. Margir leikmenn hafa spilað lengi fyrir klúbbinn og það er virkilega sárt að sjá þetta gerast."
Vill Grétar meina að lið Bolton hafi verið dæmt niður í Championship deildina? ,,Já í rauninni. Maður sá bara þetta gerast og það er virkilega leitt að þetta skuli hafa gerst. Ég vona innilega að klúbburinn komi til baka. Þeir eru með marga unga og efnilega leikmenn og ég tel að liðið sé það gott að það ætti að komast upp. Championship deildin er samt erfið deild og það er ekkert gefið þó að þú sért með besta liðið en ég vona að liðið komist upp aftur í þá deild þar sem klúbburinn á skilið að vera."
Tvö fótbrot, slæm hnémeiðsli og hjartaáfall:
Stuart Holden og Chung-Yong Lee, tveir af bestu mönnum Bolton, spiluðu ekkert á tímabilinu vegna meiðsla og þar munaði um minna. Fleiri meiðsli settu strik í reikninginn auk þess sem Fabrice Muamba fékk hjartaáfall í leik gegn Tottenham.
,,Það var alltaf vitað með Chungy strax í byrjun og það var vitað að Stuart Holden myndi missa af þessu tímabili. Við misstum Elmander líka, Daniel Sturridge og fleiri og náðum ekki að styrkja leikmannahópinn fyrir mennina sem við misstu. Það hefur áhrif að hafa ekki þessi mörk sem voru skoruð í fyrra."
,,Það hefur gengið á ýmsu, tvö fótbrot, slæm hnémeiðsli, hjartaáfall og síðan voru tólf leikmenn sem voru að renna út af samningi. Þetta hefur allt saman gífurleg áhrif og þetta var virkilega erfitt ár fyrir klúbbinn."
Fer frá Bolton í sumar:
Samningur Grétars við Bolton rennur út í sumar og ljóst er að hann mun yfirgefa félagið eftir fjögurra og hálfs árs dvöl.
,,Það er klárt að ég verð ekki áfram. Núna verður maður að slaka á yfir sumarið og sjá hvað gerist. Það er ekkert ákveðið og planað. Ég ætla að slaka á, ná mér af þessu meiðslum og sjá hvað gerist," sagði Grétar sem missti af síðustu fjórum leikjum Bolton á tímabilinu.
,,Ég tognaði framan í læri fyrir Sunderland leikinn og hef ekki verið með síðan þá," sagði Grétar sem verður ekki með íslenska landsliðinu gegn Svíum og Frökkum í lok mánaðarins. ,,Ég vona að ég verði klár fyrir landsleikina sem hefjast í ágúst og september," bætti Gréta við en undankeppni HM 2014 hefst í september.
Athugasemdir