Gylfi Þór Sigurðsson, okkar besti fótboltamaður, átti stórafmæli í gær. Hann varð þrítugur.
Hann eyddi stórum hluta dagsins í flugvél, en hann hafði fengið kökusneið í tilefni dagsins daginn áður, eftir sigur Íslands á Moldavíu á Laugardalsvelli.
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, sagði frá þessu á blaðamannafundi í Albaníu fyrr í dag.
„Hann fékk sína köku eftir leikinn. Hann fór dálítið í kaloríurnar eftir leikinn, hann fékk sína kökusneið,” sagði Aron.
Gylfi er vonandi ekki búinn að fagna stórafmælinu alveg því það er leikur á morgun gegn Albaníu í undankeppni EM. Hann fagnar vonandi eftir þann leik.
Athugasemdir