Kvennalið Breiðabliks vann magnaðan 3-2 sigur á Sparta Prag í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði tvö mörk með skalla í leiknum en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gerði sigurmarkið tíu mínútum fyrir leikslok.
Síðari leikurinn fer fram í Tékklandi þann 26. september næstkomandi.
Hægt er að sjá öll mörkin hjá Blikum með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Sjáðu mörkin úr leiknum
Athugasemdir