Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 12. september 2019 20:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ceballos: Lacazette er bestur hjá Arsenal
Lacazette er bestur hjá Arsenal að mati Ceballos.
Lacazette er bestur hjá Arsenal að mati Ceballos.
Mynd: Getty Images
Dani Ceballos kom til Arsenal á láni í sumar hann hefur byrjað vel í enska boltanum og er ánægður með lífið.

Ceballos finnst fremstu þrír leikmenn Arsenal frábærir og hann greindi frá því hver er bestur að hans mati.

„Maður getur borið Pierre-Emerick Aubameyang við Cristiano Ronaldo þegar hann var hjá Real Madrid, hann lifir fyrir að skora mörk. Hann er okkur gríðarlega mikilvægur."

„Nicolas Pepe er mjög beinskeyttur leikmaður. Mér finnst Lacazette hins vegar vera bestur, hann les leikinn svo vel og þegar hann er 100% heill heilsu þá gefur hann okkur svo mikið," sagði Ceballos.
Athugasemdir
banner
banner