Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. september 2019 09:18
Magnús Már Einarsson
Þarf kraftaverk til að Pogba spili - Fleiri tæpir
Pogba verður ekki með á morgun.
Pogba verður ekki með á morgun.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba verður ekki með Manchester United gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni á morgun vegna meiðsla.

Pogba var ekki í franska landsliðshópnum gegn Albaníu og Andorra vegna meiðslanna.

„Paul verður ekki klár nema það hafi orðið kraftaverk í bata hans í nótt. Hann hefur ekki verið tilbúinn í að æfa 100%," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, á fréttamannafundi í dag.

Anthony Martial og Luke Shaw meiddust einnig fyrir landsleikjahléið og verða ekki með á morgun. Fleiri leikmenn eru tæpir fyrir leikinn á Old Trafford.

„Ég get heldur ekki lofað því að Aaron Wan-Bissaka og Jesse Lingard verði klárir," sagði Solskjær.
Athugasemdir
banner
banner
banner