Báðar stúkurnar á Laugardalsvelli verða skreyttar mósaík í kvöld þegar Frakkland kemur í heimsókn.
Hér má fara í beina textalýsingu frá leiknum.
Hér má fara í beina textalýsingu frá leiknum.
Það sést skýrt og greinilega þegar gengið er að Laugardalsvelli að stúkurnar hafa verið undirbúnar með það í huga að skreyta stúkurnar með íslensku fánalitunum með mósaíkspjöldum.
Alls ekki í fyrsta skiptið sem þetta hefur verið gert en eins og sjá má á myndinni myndaði stúkan „Ísland" árið 2013.
Skemmtileg tilviljun að fánalitir Íslands eru þeir sömu og fánalitir Frakklands.
Athugasemdir