Kolbeinn Sigþórsson hefur staðið fyrir sínu í loftinu í fyrri hálfleik Íslands og Frakklands í undankeppni EM 2020.
Kolbeinn er þekktur fyrir það vera frábær í að vinna skallaeinvígi.
Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson segir frá skemmtilegri tölfræði Kolbeins úr fyrri hálfleiknum á Twitter. Kolbeinn hefur unnið 10 skallabolta í fyrri hálfleiknum og aðeins tapað tveimur.
Geri aðrir betur!
Seinni hálfleikurinn fer senn að hefjast. Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Kolbeinn vann 10 skallabolta í fyrri hálfleik, tapaði 2 #fotboltinet
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) October 11, 2019
Athugasemdir