Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 10. nóvember 2019 19:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Eina leiðin fyrir okkur til að vinna City
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var auðvitað rosalega ánægður eftir 3-1 sigur gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Klopp var mjög ánægður með einbeitinguna sem leikmenn Liverpool sýndu í varnarleiknum.

„Þeir voru mjög góðir," sagði Klopp við BBC Sport. „Þeir voru mjög góðir og við urðum að verjast með öllum sem við áttum. Við skoruðum ótrúleg mörk."

„Það var erfitt að spila, krafturinn í leiknum var svo mikill. Þetta var allt þess virði, frábært. Þeir gefa boltann mikið á Sterling og við vörðumst því vel að mestu leyti. Það sást hvað gerðist þegar við gleymdum okkur."

„Strákarnir voru mjög einbeittir og fókuseraðir. Það var eina leiðin fyrir okkur til að vinna City, kannski geta önnur lið gert það öðruvísi en það var eina leiðin fyrir okkur."

Fyrsta mark Liverpool var skoðað með VAR þar sem Manchester City vildi fá vítaspyrnu á hinum enda vallarsins.

„Vandamálið var VAR. Ég beið bara. Þetta er ekki eins og það var áður fyrr, en það er ekki vandamál. Ég get fagnað í kvöld."

Liverpool er á toppnum með átta stiga forskot.

„Allir leikirnir gegn City hafa verið svona fyrir utan heimaleikinn okkar á síðustu leiktíð. Bæði lið voru varkárari í þeim leik. Þessi leikur var mjög líflegur, ég kann vel við það," sagði Jurgen Norbert Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner