Englendingurinn Marley Blair hefur farið vel af stað eftir að hann skipti yfir til AB Argir í Færeyjum.
Blair lék tólf leiki í efstu deild og þrjá í bikar með Keflavík sumarið 2021 en hann sneri aftur til félagsins fyrir síðasta tímabil. Hann var þá sendur heim í júní eftir að hafa ekki staðist væntingar.
Hann er 23 ára enskur kantmaður sem var hjá Liverpool og Burnley áður en hann kom til Keflavíkur.
Núna er hann mættur til Færeyja og er það að spila í B-deildinni með AB Argir sem féll úr efstu deild á síðustu leiktíð.
AB Argir hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum og hefur Blair skorað tvö mörk í þeim leikjum.
???????? A return abroad, a return to form
— English Players Abroad (@EnglishAbroad1) April 4, 2024
It's been a good start to life for Marley Blair in the Faroe Islands.
His side AB Argir have started their new campaign in the second-tier with two wins from three and the former #LFC academy forward has scored twice in those games.
He's… pic.twitter.com/DgWvCZCYLA
Athugasemdir