Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fim 21. mars 2024 22:56
Brynjar Ingi Erluson
EM-umspilið: Stórsigrar hjá Grikklandi og Póllandi
Grikkir eru komnir í úrslit
Grikkir eru komnir í úrslit
Mynd: Getty Images
Úkraína vann dramatískan sigur á Bosníu
Úkraína vann dramatískan sigur á Bosníu
Mynd: Getty Images
Georgía, Grikkland, Pólland, Úkraína og Wales eru öll komin í úrslit umspilsins fyrir Evrópumótið í Þýskalandi.

Budu Zivzivadze skoraði bæði mörk Georgíu í 2-0 sigri á Lúxemborg í kvöld og mætir því Grikklandi sem vann sannfærandi 5-0 sigur á Kasakstan.

Pólland og Wales mætast einnig eftir að hafa unnið sannfærandi sigra.

Pólland vann 5-1 sigur á Eistlandi á meðan Wales tók Finnland örugglega, 4-1.

Úkraína mun þá mæta Íslandi í úrslitum umspilsins eftir magnaða endurkomu í 2-1 sigrinum á Bosníu og Hersegóvínu. Roman Yeremchuk og Artem Dovbyk skoruðu mörk Úkraínu á síðustu fimm mínútum leiksins.

Úrslit umspilsins fer fram á þriðjudag.

Georgía 2 - 0 Lúxemborg
1-0 Budu Zivzivadze ('40 )
2-0 Budu Zivzivadze ('63 )
Rautt spjald: Maxime Chanot ('56, Lúxemborg)

Bosnía og Hersegóvína 1 - 2 Úkraína
1-0 Mykola Matviienko ('56, sjálfsmark )
1-1 Roman Yeremchuk ('85 )
1-2 Artem Dovbyk ('88 )

Grikkland 5 - 0 Kasakstan
1-0 Anastasios Bakasetas ('9 )
2-0 Dimitrios Pelkas ('15 )
3-0 Fotis Ioannidis ('37 )
4-0 Dimitrios Kourbelis ('40 )
5-0 Erkin Tapalov ('85 )

Pólland 5 - 1 Eistland
1-0 Przemyslaw Frankowski ('22 )
2-0 Piotr Zielinski ('50 )
3-0 Jakub Piotrowski ('70 )
4-0 Karol Mets ('73, sjálfsmark )
5-0 Sebastian Szymanski ('76 )
5-1 Martin Vetkal ('78 )
Rautt spjald: Maksim Paskotsi ('27, Eistland)

Wales 4 - 1 Finnland
1-0 David Brooks ('3 )
2-0 Neco Williams ('38 )
2-1 Teemu Pukki ('45 )
3-1 Brennan Johnson ('47 )
4-1 Daniel James ('86 )
Athugasemdir
banner
banner
banner