Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 13. ágúst 2011 06:00
Snorri Helgason
Glaumbar nýtt heimili Man.Utd. klúbbsins á Íslandi
Glaumbar er nýr heimavöllur Man.Utd manna á Íslandi
Glaumbar er nýr heimavöllur Man.Utd manna á Íslandi
Mynd: Getty Images
Glaumbar er að opna að nýju með pompi og prakt og mun sinna þörfum fótboltaáhugamanna með beinum útsendingum frá kappleikjum.

Stóru tíðindin eru þau að stuðningsmannaklúbbur Manchester United á Íslandi hefur gert Glaumbar að heimastað sínum í Reykjavík.

Á Glaumbar verður starfrækt sérstök boltavakt á stórleikjum þar sem ýmsar uppákomur og sérstök tilboð verða á boðstólnum.

Fyrsti leikur klúbbsins er á sunnudaginn og því mun boltavaktin verða með sérstaka dagskrá á Glaumbar. Þetta er fyrsti klúbburinn sem semur við Glaumbar um þjónustu en staðurinn býður alla klúbba og áhugamenn velkomna í heimsókn.
banner
banner
banner