Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 15. október 2011 10:30
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Stuðningsmannasíða KR 
Guðjón Baldvinsson hjá Halmstad til reynslu
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Sóknarmaðurinn Guðjón Baldvinsson æfir um helgina með sænska úrvalsdeildarliðinu Halmstad. Frá þessu greinir stuðningsmannasíða KR.

Með Halmstad leikur Jónas Guðni Sævarsson, fyrrum leikmaður KR og Keflavíkur.

Guðjón þekkir vel til Svíþjóðar en hann var á mála hjá GAIS.

Hann skoraði átta mörk í 20 leikjum með KR í Pepsi-deildinni í sumar.

Halmstad er í neðsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en heil ellefu stig eru upp í sætið fyrir ofan.
banner
banner