Heimild: KSÍ
Súpufundur um aðferðir Stjörnunnar í þjálfun
Kvennalið Stjörnunnar er ríkjandi Íslandsmeistari. Stjarnan úr Garðabæ á tvö mjög sterk meistaraflokkslið
Stjarnan er eina félagið sem átti tvö verðlaunuð lið í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð. Þeir í Garðabænum fara aðrar leiðir í þjálfun og nú geta áhugasamir fengið að vita allt um það.
Þriðjudaginn 6. desember kl. 12.00 mun Þórhallur Siggeirsson, yfirþjálfari yngri flokka Stjörnunnar, halda fyrirlestur í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum. Þetta segir á heimasíðu KSÍ.
Þriðjudaginn 6. desember kl. 12.00 mun Þórhallur Siggeirsson, yfirþjálfari yngri flokka Stjörnunnar, halda fyrirlestur í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum. Þetta segir á heimasíðu KSÍ.
Þórhallur mun fjalla ítarlega um aðferðir Stjörnunnar í þjálfun leikmanna en félagið hefur undanfarin 2 ár unnið markvisst eftir nýrri stefnu. Stefnan er áhugaverð og frábrugðin því sem gengur og gerist í íslensku knattspyrnuumhverfi.
„Þessi fyrirlestur höfðar til allra þjálfara, sérstaklega yfirþjálfara yngri flokka sem og stjórnarmanna í barna- og unglingaráðum og knattspyrnustjórnum," segir á heimasíðu KSÍ.
Fyrirlesturinn veitir 2 endurmenntunarstig fyrir KSÍ A og KSÍ B þjálfaragráður. Aðgangur er ókeypis, allir velkomnir og fundargestir fá súpu og brauð í boði KSÍ.
Skráðu þig með því að smella hérna

