Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 14. ágúst 2019 07:45
Oddur Stefánsson
PSG vill Icardi ef Neymar fer
Mynd: Getty Images
Frönsku meistararnir PSg eru sagðir vera á eftir Mauro Icardi leikmanni Inter ef Neymar fer til Barcelona.

Neymar hefur verið mikið orðaður við Barcelona og er ansi ólíklegt að Neymar leiki mikið með PSG á þessari leiktíð.

Mauro Icardi sem hefur verið erfiður fyrir á tíma sínum hjá Inter vill ekki ganga í raðir Roma né Napoli og Inter vill ekki selja Icardi til Juventus.

Þar sem tíminn er naumur og lítið eftir af félagsskiptaglugganum þá gæti Icardi þurft að skoða möguleika sína fyrir utan landsteina Ítalíu og virðist PSG vera líklegasti möguleikinn.

Neymar er lykillinn í þessum viðskiptum og verður að koma í ljós hvað verður úr hans málum hjá PSG.

PSG vill fá 220 milljónir Evra fyrir Neymar en það gæti verið leyst með pening plús Coutinho og annan leikmann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner