Bayern vill 100 milljónir fyrir Olise - Chelsea reynir að fá Guehi og Maignan frítt - Konate ætlar til Real Madrid
   mið 14. ágúst 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Lítill áhugi á Alexis Sanchez
Manchester United vill koma Alexis Sanchez í burtu á láni áður en félagaskiptaglugginn í helstu deildum Evrópu lokar um mánaðarmótin.

Búið er að loka félagaskiptaglugganum í ensku úrvalsdeildinni en í öðrum deildum er ennþá opið.

Alexis Sanchez hefur einungis skorað fimm mörk með Manchester United síðan hann kom til félagsins frá Arsenal í janúar 2018.

Sanchez er með 500 þúsund pund í laun á viku og það hefur gert Manchester United erfiðara fyrir í að finna nýtt félag fyrir hann.

Roma er eina félagið sem hefur áhuga á Sanchez í augnablikinu en ljóst þykir að Manchester United þurfi að greiða hluta af launum hans áfram ef hann fer á lán.
Athugasemdir
banner