Harry Kane hefur verið sakaður um leikaraskap að undanförnu og var gagnrýndur fyrir að fara auðveldlega niður í 2-2 jafntefli gegn Arsenal í byrjun mánaðar.
Kane fiskaði vítaspyrnu og skoraði úr henni sjálfur til að koma Tottenham í 0-2 en það dugði ekki til sigurs.
„Aldrei, og vonandi mun ég aldrei þurfa þess," sagði Kane við ESPN aðspurður hvort hann hefði einhvern tímann dýft sér.
„Þetta var 50/50 tækling í Arsenal leiknum. Þetta var alveg eins og brotið sem við fengum dæmt á okkur á Wembley í fyrra.
„Ég nota líkamann mjög vel og í þau skipti sem ég dett innan teigs þá væri það alltaf aukaspyrna úti á velli.
Athugasemdir