Reading hefur rekið knattspyrnustjórann Jose Gomes eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Reading er í 22. sæti af 24 liðum í Championship deildinni eftir einungis tvo sigra í fyrstu ellefu umferðunum.
Hinn portúgalski Gomes tók við Reading í desember í fyrra og bjargaði liðinu frá falli í vor.

Jökull Andrésson, markvörður U19 ára landsliðs Íslands, er á mála hjá Reading.
Jón Daði Böðvarsson lék með Reading síðustu tvö tímabil áður en hann var seldur til Millwall í sumar.
Athugasemdir