Alexandre Lacazette, framherji Arsenal, stefnir á að snúa aftur til æfinga í næstu viku eftir ökklameiðsli.
Lacazette hefur verið frá keppni síðan hann skoraði í grannaslagnum gegn Tottenham þann 1. september.
Lacazette hefur verið frá keppni síðan hann skoraði í grannaslagnum gegn Tottenham þann 1. september.
Meiðslin komu meðal annars í veg fyrir að Lacazette kæmi með franska landsliðinu til Íslands fyrir leikinn í undankeppni EM í kvöld.
Lacazette stefnir á að hefja æfingar í næstu viku og verða klár í slaginn þegar Arsenal mætir Sheffield United þarnæsta mánudag.
Lacazette hefur skorað 38 mörk fyrir Arsenal síðan hann kom til félagsins frá Lyon árið 2017.
Athugasemdir