Srdjan Rajkovic hefur verið ráðinn sem nýr aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki Þróttar R. næstu þrjú árin, eða út keppnistímabilið 2022.
Rajkovic mun einnig sjá um markvarðaþjálfun hjá meistaraflokki og afreksþjálfun annarra markvarða.
Rajko hefur verið viðriðinn fótboltaheiminn á Íslandi síðustu 20 ár og gerði garðinn frægan sem aðalmarkvörður Fjarðabyggðar. Þaðan var hann fenginn í Þór og lauk hann leikmannaferli sínum hjá KA.
Í sumar var hann markmannsþjálfari hjá Grindavík og var skráður til leiks með GG í 4. deildinni en kom þó aldrei við sögu. Rajko er 43 ára gamall.
Srdjan Rajkovic, Rajko, hefur verið ráðinn í þjálfarateymi Þróttar út keppnistímabilið 2022. Hann er ráðinn sem aðstoðarþjálfari mfl auk þess sem hann sér um markvarðaþjálfun mfl og afreksþjálfun annarra markvarða. Við hlökkum við til góðs samstarfs á komandi tímabilum. #Lifi pic.twitter.com/4ARaSnlnYw
— Þróttur (@throtturrvk) November 8, 2019
Athugasemdir