Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. desember 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Howe: Allir hjá félaginu styðja Afobe
Afobe í leik með Bournemouth.
Afobe í leik með Bournemouth.
Mynd: Getty Images
Eddie Howe, stjóri Bournemouth, segir að allir hjá félaginu standi þétt við bakið á framherjanum Benik Afobe og fjölskyldu hans.

Afobe spilaði með Bournemouth frá 2016 til 2018 en hann er í dag í láni hjá Stoke frá Bristol City.

Á föstudaginn lést tveggja ára dóttir Afobe eftir alvarlega sýkingu.

„Þetta eru skelfilegar fréttir fyrir Benik, Lois og alla Afobe fjölskylduna. Við þekkjum þau vel og vorkennum þeim. Allir hjá félaginu vilja sýna Benik stuðning," sagði Howe í dag.

Sjá einnig:
Ung dóttir Afboe lést
Athugasemdir
banner
banner