Heimild: Mbl.is
Danskir fjölmiðlar fjalla um ansi sérstakt mál en svikahrappurinn Bernio Verhagen krækti sér í samning hjá danska félaginu Viborg.
Með fölsuðum tölvupóstum sem voru í nafni Stellar Group umboðsskrifstofunnar fékk Verhagen samning hjá Viborg en ferilskrá hans var uppspuni.
Í póstunum var sagt að Verhagen yrði líklega seldur til Kína fyrir háar fjárhæðir og þar mátti finna fölsuð meðmæli frá Marc Overmars og fleirum.

Mbl.is fjallar um málið og er með viðtal við landsliðsmarkvörðinn Ingvar Jónsson, leikmann Viborg.
„Það var nóg að sjá hann á einni æfingu. Það sást fljótlega á æfingunni að það var eitthvað gruggugt við þetta því leikmaðurinn var mjög slakur," sagði Ingvar og tók undir að málið væri búið að vera vandræðalegt fyrir Viborg.
Verhagen hefur verið dæmdur í gæsluvarðhald til 16. desember en hann hefur verið ákærður fyrir svindl og þá hefur dönsk fyrrverandi kærasta hans stigið fram í dönskum fjölmiðlum og sagt frá ofbeldisfullri framkomu hans.
Athugasemdir