Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 11. desember 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Shaw til Lukaku: Velkominn aftur
Mynd: Getty Images
Luke Shaw og Romelu Lukaku eru góðir félagar eftir tíma þeirra saman hjá Manchester United.

Lukaku yfirgaf Man Utd síðasta sumar til að ganga í raðir Inter og var ánægður með að fá loks að spila í Meistaradeildinni. Það dugði þó skammt því Inter var slegið úr leik í gærkvöldi.

Lukaku skoraði eina mark Inter í 1-2 tapi gegn varaliði Barcelona í gærkvöldi. Inter þurfti sigur til að komast í 16-liða úrslitin en mun þess í stað fara beint niður í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar eftir áramót.

Rauðu djöflarnir eru meðal keppenda í Evrópudeildinni og nýtti Shaw því tækifærið í gærkvöldi til að bjóða Lukaku velkominn aftur í Evrópudeildina með færslu á Twitter.


Athugasemdir
banner
banner
banner