Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   lau 09. mars 2024 20:53
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu hrikaleg mistök Ramsdale: Gaf Brentford jöfnunarmarkið
Mynd: Getty Images
Arsenal vann nauman sigur í Lundúnaslag gegn Brentford í dag eftir að hafa tekið forystuna í fyrri hálfleik.

Gestirnir úr Brentford jöfnuðu leikinn seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir afar slæm mistök Aaron Ramsdale á milli stanganna.

Ramsdale fékk sendingu til baka og var alltof lengi að athafna sig. Yoane Wissa var snöggur að mæta í pressuna og tókst að henda sér fyrir hreinsun Ramsdale frá marki með þeim afleiðingum að boltinn endaði í netinu.

Þessi mistök komu þó ekki að sök, þar sem Ramsdale varði meistaralega í seinni hálfleik til að halda stöðunni jafnri áður en Kai Havertz skoraði sigurmark á lokakaflanum til að senda Arsenal á topp ensku úrvalsdeildarinnar.

Sjáðu markið
Athugasemdir
banner
banner
banner