Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mán 18. mars 2024 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andri Lucas í liði vikunnar - Sjáðu markið sem hann skoraði
Andri Lucas Guðjohnsen.
Andri Lucas Guðjohnsen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Lucas Guðjohnsen er í liði vikunnar í dönsku úrvalsdeildinni hjá TIpsbladet.

Andri Lucas var á skotskónum í 2-0 sigri Lyngby á Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í gær en þetta var fyrsti sigur liðsins síðan Freyr Alexandersson hætti með liðið.

Freyr hætti með Lyngby um áramótin og tók við Kortrijk í Belgíu en síðan þá hafði Lyngby tapað fjórum deildarleikjum í röð. Í gær kom svo mikilvægur sigur.

Andri Lucas gerði annað mark liðsins á 50. mínútu leiksins og áttunda markið sem hann gerir í deildinni á þessu tímabili.

„Lyngby þarf á því að halda að þeirra markahæsti maður standi sig ef liðið á að sleppa við fall í vor. Á sunnudaginn stóð hann sig vel þegar hann skoraði eftir hornspyrnu," segir í umsögn Tipsbladet.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá markið sem Andri Lucas skoraði.


Athugasemdir
banner
banner
banner