Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mán 18. mars 2024 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Cucurella kallaður inn í spænska landsliðið
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Marc Cucurella hefur verið kallaður inn í spænska landsliðshópinn í stað Jose Gaya en þetta kemur fram í tilkynningu spænska fótboltasambandsins.

Gaya, sem er á mála hjá Valencia, fór meiddur af velli undir lok fyrri hálfleiks í 1-0 tapi liðsins gegn Villarreal í gær.

Hann var valinn í spænska landsliðshópinn fyrir verkefnið sem hefst í vikunni, en hefur nú dregið sig úr hópnum.

Marc Cucurella, leikmaður Chelsea, hefur því verið kallaður inn í hópinn í stað hans.

Varnarmaðurinn á aðeins einn leik fyrir spænska landsliðið en hann bar fyrirliðabandið í 4-0 sigri á Litháen í æfingarleik fyrir þremur árum.


Athugasemdir
banner
banner
banner