Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fim 21. mars 2024 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kom ferlinum aftur af stað hjá Íslendingafélagi og tekur nú næsta skref
Tochi Chukwuani.
Tochi Chukwuani.
Mynd: Getty Images
Lyngby hefur selt miðjumanninn Tochi Chukwuani til Sturm Graz í Austurríki og mun hann fara þangað í sumar. Þetta segir í tilkynningu frá danska félaginu.

Samningur Chukwuani átti að renna út núna í sumar en hann samþykkti að framlengja samninginn sinn svo Lyngby gæti fengið pening fyrir sig.

Chukwuani þótti mikið efni á sínum tíma en hann kemur úr akademíu Nordsjælland. Hann gekk hins vegar í raðir Lyngby á frjálsri sölu árið 2022. Hann hefur komið ferlinum aftur af stað hjá Íslendingafélaginu og hjálpaði Freyr Alexandersson honum mikið.

Stærstu félög Danmerkur hafa sýnt honum áhuga en þessi tvítugi miðjumaður tekur næsta skref í Austurríki.

„Við erum ánægð fyrir hans hönd og stolt að okkur hafi tekist að hjálpa honum að þróast í okkar sterka umhverfi," segir Nicas Kjeldsen, yfirmaður fótboltamála hjá Lyngby.
Athugasemdir
banner
banner
banner