Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 22. mars 2024 19:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arnór Sig ekki með gegn Úkraínu vegna meiðsla
Icelandair
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Arnór Sigurðsson verður ekki með íslenska landsliðinu gegn Úkraínu í úrslitaleik um sæti á EM vegna meiðsla.


Hann þurfti að fara af velli vegna meiðsla á ökkla í sigrinum gegn Ísrael í gær eftir að Roy Revivo braut á honum og uppskar rautt spjald.

Mikil skakkaföll hafa verið á hópnum bæði í aðdraganda leiksins gegn Ísrael og einnig eftir leikinn en Jóhann Berg Guðmundsson gat ekki tekið þátt í leiknum og Arnór Ingvi Traustason varð einnig fyrir meiðslum í leiknum.

Stefán Teitur Þórðarson hefur verið kallaður inn í hópinn og líklegt þykir að Jóhann Berg verði klár í slaginn fyrir leikinn gegn Úkraínu.


Athugasemdir
banner
banner
banner