Fabrizio Romano segir að Sadio Mane verði staðfestur sem nýr leikmaður FC Bayern í dag eftir að félagið keypti hann af Liverpool fyrir um 35 milljónir punda.
Hinn þrítugi Mane er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Bayern eftir sex frábær ár í Liverpool.
„Þegar umboðsmennirnir sögðu mér frá áhuga FC Bayern varð ég strax spenntur," sagði Mane.
„Ég gat strax séð sjálfan mig spila fyrir félagið og ég er sannfærður um að þetta er rétta félagið á réttum tíma fyrir mig.
„Ég vildi bara fara til Bayern."
FC Bayern er búið að krækja í Noussair Mazraoui og Ryan Gravenberch í sumar og yrði Mane þriðji leikmaðurinn til að ganga í raðir Þýskalandsmeistaranna. Bayern er einnig á höttunum eftir Konrad Laimer, miðjumanni RB Leipzig sem er í uppáhaldi hjá Julian Nagelsmann þjálfara.
#Mané im #FCBayern-Shirt. @mano_bonke pic.twitter.com/er6Vhe7FUk
— Philipp Kessler (@kessler_philipp) June 21, 2022