Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 26. mars 2024 19:03
Brynjar Ingi Erluson
Mainoo byrjar gegn Belgíu - Rashford aftur á tréverkinu
Kobbie Mainoo er í byrjunarliði Englands
Kobbie Mainoo er í byrjunarliði Englands
Mynd: Getty Images
Hinn 18 ára gamli Kobbie Mainoo er í byrjunarliði Englands gegn Belgíu í kvöld en þjóðirnar eigast við í vináttulandsleik klukkan 19:45.

Mainoo var ekki í upprunalega hópnum sem Gareth Southgate tilkynnti fyrir verkefnið en miðjumaðurinn var kallaður inn vegna meiðsla.

Þessi efnilegi leikmaður hefur slegið í gegn með Manchester United á tímabilinu og er nú að fara byrja sinn fyrsta A-landsleik, en hann spilaði sinn fyrsta leik um helgina er hann kom inn af bekknum í 1-0 tapi gegn Brasilíu.

Declan Rice er með fyrirliðabandið í 50. landsleik sínum með Englandi. Marcus Rashford er aftur á bekknum.

Byrjunarlið Englands: Pickford (M), Konsa, Chilwell, Dunk, Stones, Rice (F), Foden, Mainoo, Bellingham, Toney Bowen.
Varamenn: Ramsdale (M), Trafford (M), Gallagher, Watkins, Gordon, Gomez, Henderson, Branthwaite, Lewis, Palmer, Maddison, Rashford.

Byrjunarlið Belgíu: Sels, Castagne, Debast, Fertoghen, Theate, Mangala, Onana, Tielemans, Trossard, Lukaku, Doku.
Athugasemdir
banner
banner
banner