Óvenjulegt atvik átti sér stað þegar Yeovil sigraði Bromley 3-1 í ensku utandeildinni um helgina.
Dómari leiksins ákvað á 85. mínútu að reka alla boltastrákana upp í stúku.
Yeovil leiddi í leiknum og dómarinn taldi að boltastrákarnir væru að tefja með því að vera lengi að láta leikmenn Bromley fá boltann þegar hann fór af velli.

Dómarinn þurfti síðan sjálfur að sinna hlutverki boltastráka út leikinn en hann hljóp á eftir boltum sem fóru út af vellinum á síðustu mínútum leiksins.
85 | Update: he's dismissed all of them...
— Yeovil Town FC (@YTFC) September 28, 2019
(3-1) #YTFC
Athugasemdir