Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 16. janúar 2010 17:27
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Rafa Benitez: Leikmennirnir voru frábærir
Mynd: Getty Images
Rafa Benitez, stjóri Liverpool, var ánægður með karakter sinna manna í 1-1 jafnteflinu gegn Stoke í dag.

,,Þetta var erfiður leikur og við sýndum mikinn karakter. Leikmennirnir voru frábærir og það sást að stuðningsmennirnir voru ánægðir með þeirra frammistöðu."

,,Tvö eða þrjú atvik hefðu getað breytt öllu, 27 þúsund manns á vellinum sáu atvikin en þrír aðilar ekki," sagði Benitez og átti þar við atriði í leiknum þar sem að Liverpool vildi fá vítaspyrnu.

,,Ég ætla ekki að tala um þessi atvik. Þetta var svo augljóst. Mér fannst við fá færi í mjög erfiðum leik gegn mjög erfiðu liði. Þetta er ekki auðvelt, þeir eru sterkir líkamlega."

,,Fimm lykilmenn okkar voru ekki hér og ég er ánægður með hugarfarið og karakterinn hjá leikmönnum okkar. Allir eru mjög vonsviknir því að við vorum nálægt þessu en þú verður að hrósa liðinu fyrir frammistöðuna."

Athugasemdir
banner