Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. mars 2017 10:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
KSÍ fagnar 70 ára afmæli í dag
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Knattspyrnusamband Íslands fagnar 70 ára afmæli í dag, knattspyrnusambandið var stofnað þann 26. mars 1947.

Agnar Klemens Jónsson var fyrsti formaður KSÍ, Guðni Bergsson sem var kjörinn formaður í febrúar var sá níundi til að taka við starfinu.

Í frétt KSÍ má sjá skemmtilegan texta úr bókinni „Knattspyrna í heila öld" eftir þá Víði Sigurðsson og Sigurð A. Friðþjófsson. Bókin kom út árið 1997 þegar KSÍ var 50 ára.

Hér má sjá textann úr bókinni „Knattspyrna í heila öld" þar sem talað er um stofnfund KSÍ:

„Stofnfundurinn var haldinn við Vonarstræti í Reykjavík (mynd), þar sem umhverfisráðuneytið er nú til húsa. Fimmtán fulltrúar frá tólf félögum mættu á fundinn; Fram, KR, Víkingi og Val úr Reykjavík, Haukum og FH úr Hafnarfirði, Kára og KA frá Akranesi, Þór og KA frá Akureyri og Þór og Tý frá Vestmannaeyjum. Auk þess óskuðu Íþróttabandalag Ísafjarðar og Íþróttabandalag Siglufjarðar eftir því að taka þátt í stofnun KSÍ, en þau gátu ekki sent fulltrúa á fundinn. Alls voru því félög og íþróttabandalög sem áttu aðild að KSÍ frá byrjun 14 talsins.
Athugasemdir
banner
banner