Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
   mán 15. janúar 2018 18:00
Elvar Geir Magnússon
Hamsik: Þeir sem elska fótbolta vilja að Napoli vinni
Marek Hamsik.
Marek Hamsik.
Mynd: Getty Images
Marek Hamsik, leikmaður Napoli, segir að Napoli eigi skilið að verða Ítalíumeistari í ár.

Napoli er með eins stigs forystu á ríkjandi meistara í Juventus en stutt hlé er í gangi í deildinni. Allt fer á fullt aftur um næstu helgi.

„Ítalíumeistaratitillinn er draumur minn. Ég á sama draum og stuðningsmennirnir og liðsfélagarnir," segir Slóvakinn.

„Ég held einnig að allir sem elski fótbolta vilji að við vinnum því við spilum svo ótrúlega fallegan fótbolta. Við eigum skilið að verða meistarar."

Napoli heimsækir Atalanta á laugardag en Juventus leikur gegn Genoa á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner