Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 09. desember 2018 19:11
Elvar Geir Magnússon
Nuno: Áttum ekki skilið að vinna en gerðum það samt
Úlfarnir voru heppnir að vinna.
Úlfarnir voru heppnir að vinna.
Mynd: Getty Images
Nuno Espirito Santo, stjóri Wolves, segir að sigur sinna manna gegn Newcastle í dag hafi ekki verið verðskuldaður.

Wolves vann dramatískan sigur gegn Newcastle.

„Við áttum ekki okkar bestu frammistöðu. Við biðum ósigur í einvígum og héldum boltanum illa. Þetta átti að enda með jafntefli," sagði Nuno hreinskilinn eftir leik.

„Rauða spjaldið sem þeir fengu breytti leiknum. Við vorum heppnir að vinna."

Rafa Benítez, stjóri Newcastle, var allt annað en sáttur við dómgsæslu Mike Dean og hans manna eins og hann lét í ljós í viðtali eftir leikinn.

Nuno vildi lítið segja um dómgæsluna.

„Það var erfitt fyrir mig að sjá þetta frá þeim stað þar sem ég var staðsettur. Ekki spyrja mig alltaf um dómarana. Þetta er erfitt starf," sagði Nuno.

Wolves er í tíunda sæti en Newcastle í því fimmtánda, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner