fim 12. september 2019 22:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Meiðsli Lallana höfðu áhrif á sambandið við Henderson
Adam Lallana.
Adam Lallana.
Mynd: Getty Images
Adam Lallana leikmaður Liverpool hefur verið mjög óheppinn með meiðsli á síðustu árum, hann er núna heill heilsu og er ákveðinn í því að reyna vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu.

Hann segir að meiðslin hafi haft slæm áhrif á samband hans við fyrirliðann Jordan Henderson en þeir eru miklir félagar.

„Síðasta tímabil var sérstaklega erfitt, ég var oft mjög niðurdreginn og reiður, ég var samt ekki reiður út í neinn ákveðinn, ég var bara pirraður yfir stöðunni á sjálfum mér."

„Í kringum félagana reyndi ég að halda mér svolítið frá Jordan (Henderson). Ég vissi hversu mikilvægt þetta tímabil var fyrir hann og stór verkefni framundan sem hann þurfti að einbeita sér að. Ég vildi ekki að hann færi að hafa áhyggjur af mér," sagði Lallana.

Lallana ætlar að koma sér í byrjunarliðið.

„Þetta er 60 leikja tímabil, ég þarf bara að bíða eftir mínu tækifæri og nýta það þegar það kemur. Ég mun gera mitt allra besta þegar tækifærið kemur," sagði Lallana
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner