Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 13. september 2019 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Aurier var ákveðinn í að yfirgefa Spurs
Serge Aurier.
Serge Aurier.
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Serge Aurier segist hafa verið ákveðinn í því að yfirgefa Tottenham í sumar en segir að hlutirnir hafi breyst fljótt og hann fór að lokum ekki neitt.

„Ég var búinn að ákveða að fara og var sáttur með þá ákvörðun. En hlutirnir eru oft fljótir að breytast og sú staða kom upp að ég gat ekki farið."

„Það var ánægjulegt fyrir mig að félagið vildi halda mér. Það verður spennandi að sjá hvernig þetta tímabil þróast, félagaskiptaglugginn er lokaður og nú þarf maður að setja einbeitinguna á komandi verkefni," sagði Aurier.

Tottenham fær Crystal Palace í heimsókn í Lundúnaslag á morgun, flautað verður til leiks klukkan 14:00.
Athugasemdir
banner
banner