Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 15. september 2019 21:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Suarez tileinkaði dóttur Luis Enrique mark sitt
Mynd: Getty Images
Luis Suarez kom inn af bekknum í gær þegar Barcelona vann Valencia 5-2 í spænsku úrvalsdeildinni. Suarez hefur verið að glíma við meiðsli, en hann kom inn á í gær og var fljótur að láta til sín taka.

Hann skoraði tvö mörk í gær, en fyrra markið skoraði hann nokkrum sekúndum eftir að hann kom inn á sem varamaður. Hann tileinkaði markið dóttur Luis Enrique, fyrrum þjálfara Barcelona.

Xana, dóttir Luis Enrique, lést í síðasta mánuði eftir baráttu við krabbamein. Hún var níu ára gömul.

Enrique þjálfaði Barcelona frá 2014 til 2017 og vann liðið Meistaradeildina undir hans stjórn árið 2015. Suarez skoraði í úrslitaleiknum sem Barcelona vann 3-1 gegn Juventus.

Í júní ákvað Enrique að stíga til hliðar sem landsliðþjálfari Spánar vegna veikinda dóttur sinnar.

Í gær, er hann skoraði, fagnaði Suarez með því að mynda 'X' með fingrum sínum. Hann benti svo til himins.

Fjölskylda Suarez á í góðu sambandi við fjölskyldu Enrique. Suarez á tvo syni, en dóttir hans, Delfina, fór í sama skóla og Xana.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner