Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 11. október 2019 21:49
Magnús Már Einarsson
Jóhann Berg frá í einhvern tíma - Ekki með á mánudag
Icelandair
Jóhann Berg í leiknum í kvöld.
Jóhann Berg í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson, kantmaður íslenska landsliðsins, verður frá í einhvern tíma eftir að hafa tognað aftan í læri snemma leiks gegn Frökkum í kvöld.

LJóst er Jóhann verður ekki með í leiknum gegn Andorra á Laugardalskvöldi á mánduagskvöld.

„Ég get ekki sagt til um það hversu slæm meiðslin eru en hann verður ekki klár á mánudag," sagði Erik Hamren landsliðsþjálfari á fréttamannafundi í kvöld.

Jóhann er nýkominn aftur á fulla ferð eftir meiðsli á kálfa en meiðslin í kvöld eru mikið áfall fyrir hann.

Rúnar Már Sigurjónsson verður heldur ekki með gegn Andorra en hann tognaði einnig aftan í læri í kvöld.

Búast má við að einhverjir leikmenn verði kallaðir inn í landsliðshópinn í þeirra stað fyrir leikinn á mánuadg.
Athugasemdir
banner