Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. nóvember 2019 12:29
Brynjar Ingi Erluson
Mainz rekur Schwarz - Þrír þjálfarar farnir á viku (Staðfest)
Sandro Schwarz
Sandro Schwarz
Mynd: Getty Images
Þýska félagið Mainz hefur ákveðið að láta Sandro Schwarz taka poka sinn eftir 3-2 tapið gegn Union Berlin um helgina.

Schwarz er 41 árs gamall og tók við Mainz árið 2017 en liðið er í 16. sæti með 9 stig eftir 11 umferðir.

Hann er þriðji þjálfarinn í deildinni sem er látinn taka poka sinn á innan við viku.

Niko Kovac var látinn fara frá Bayern München síðustu helgi og þá var Achim Beierlorzer rekinn frá Köln í gær.

Mainz mætir Hoffenheim í næstu umferð en sá leikur er eftir tvær vikur.
Athugasemdir
banner
banner